Flex - liðleiki og styrkur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku
-
8. júlí - 13. ágúst 2024 Mánudagar kl. 20:30 - 21:30
5. júlí - 9. ágúst 2024 Föstudagar kl. 17:30 - 18:30
Langar þig að bæta liðleika þinn og komast í splitt eða brú? Eða viltu bara verða almennt liðugri og með betri hreyfigetu? Á þessu námskeiði er lögð áhersla á aktívar styrktar- og liðleikaæfingar.
Nemendur þurfa ekki að vera mjög liðugir til að skrá sig á þetta námskeið! Þú bætir liðleikann á þínum hraða og allir fá æfingar við hæfi. Hér lærir þú æfingar og teyjur sem þú getur endurnýtt í hvaða umhverfi sem er.
Hægt er að nota klippikort til að skrá sig í flex tíma. Þá er hægt að skrá sig á heimasíðunni okkar undir “skráning í staka tíma” eða á staðnum.