Langar þig að æfa pole eða loftfimleika en hefur enga fyrri reynslu? Eftirfarandi námskeið eru fyrir byrjendur!
Eríal Pole er pole og loftfimleika stúdíó í hjarta Reykjavíkur. Við höfum verið starfandi síðan 2012 og sérhæfum okkur í pole fitness, pole dans, loftfimleikum eins og Lýru(aerial hoop) og Silki(aerial silks). Einnig erum við með Flex liðleikaþjálfun sem við mælum klárlega með fyrir alla, því aukin hreyfigeta gerir allar æfingar skemmtilegri! Við leggjum áherslu á líkamsvirðingu og hvetjandi andrúmsloft.
Hér er listi af öllum byrjenda námskeiðunum okkar. Skoðaðu hér neðar á síðunni hvað er í boði hverju sinni.
💪 Pole Fitness Level 1: Vinsælasta námskeiðið okkar! Áhersla á að byggja upp styrk, æfa snúninga, stöður og trikk á súlunni (enginn dans).
🔥Pole dance 101: Kynþokkafullt flæði. Hér lærir þú dansrútínu við seiðandi tónlist, bæði á súlunni og á gólfinu (floorwork).
🎪Aerial Silks loftfimleikar: Lærðu fallegar stöður í silkislæðunum. Skemmtileg leið til að byggja upp styrk í handleggjunum, öxlunum og kviðnum!
Flex liðleikaþjálfun: Hér er farið í styrktar- og teygjuæfingar fyrir splitt, spígat, bak- og axlarliðleika. Þetta námskeið er fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna, það geta allir fundið æfingar við sitt hæfi!
-
Pole Fitness – Level 1 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x í viku
-
3. júlí - 7. ágúst 2024 Miðvikudagar kl. 16:10 - 17:10
-
4. júlí - 8. ágúst 2024 Fimmtudagar kl. 19:25 - 20:25
-
-
Flex - liðleiki og styrkur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku
-
8. júlí - 13. ágúst 2024 Mánudagar kl. 20:30 - 21:30
5. júlí - 9. ágúst 2024 Föstudagar kl. 17:30 - 18:30
-
-
Flex - liðleiki og styrkur 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku
5. júlí - 13. ágúst 2024 Mánudagar kl. 20:30 - 21:30 Föstudagar kl. 17:30 - 18:30
Flex liðleikaþjálfun er hin fullkomna viðbót til að æfa samhliða öðrum íþróttum og sérstaklega í súlu og loftfimleikum. Aukin hreyfigeta gerir allt svo mikið auðveldara! Flex er ekki bara fyrir þau sem eru þegar liðug því það geta allir bætt liðleikann sinn. Lögð er áhersla á aktívar styrktar og liðleikaæfingar. Smelltu hér ef þú vilt æfa einu sinni í viku! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu. -
Conditioning - styrktaræfingar 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku
-
09. júlí - 13. ágúst 2024 Þriðjudagar kl. 12:00-13:00
-
-
Aerial Silks - Byrjendanámskeið 6 vikna námskeið, kennt 1x eða 2x í viku
4. júlí - 12. ágúst 2024
Þriðjudagar kl. 16:15 - 17:15
Fimmtudagar kl. 16:15 - 17:15
Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.