fbpx

Áskrift hjá Eríal Pole

11.600 kr.36.400 kr.

ÓTÍMABUNDIN ÁSKRIFT

1x í viku – 11.600 kr á mánuði

2x í viku – 18.200 kr á mánuði

3x í viku – 27.300 kr á mánuði 

Ótakmarkaðir tímar – 36.400 kr á mánuði

Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 6.000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.

ATH: Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega til að tryggja að þetta sé rétti kosturinn fyrir þig.

NOTE: Please read the terms and conditions carefully to ensure this is the right option for you.

Lágmarksbinditími er 6 mánuðir. Uppsagnarfrestur eru þrír mánuðir.

Minimum commitment period is 6 months. Cancellation notice period is 3 months.

Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1. dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 5. dag hvers mánaðar.

Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.

Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og námskeið sem þau vilja vera skráð á.

Please write your kennitala and classes you are interested in in the comments.

 

 

Description

 

Skilmálar

Lágmarksbinditími er 6 mánuðir og uppsagnarfrestur eru þrír mánuðir. Áskriftin heldur áfram þar til skrifleg uppsögn berst, óháð mætingu.

Eríal Pole áskilur sér rétt til að aflýsa tímum ef lágmarks skráning er ekki uppfyllt. Nemandi sem skráð(ur) er á tímann sem aflýst er mun fá inneign sína endurgreidda á reikning sinn. Nemendur munu fá tölvupóst ef tíminn þeirra er aflýst og ber þeim að staðfesta að tímarnir séu enn á áætlun.

Við ábyrgjumst ekki tiltekinn fjölda tíma á viku af neinu sérstökum tegundum og hvetjum því alla nemendur til að vera opnir fyrir því að sækja fjölbreytta tíma. Ónotaðar inneignir í lok mánaðarins munu falla úr gildi og ekki verða endurgreiddar. Sæti í tímum má dreifa um mánaðartímann eftir óskum.

Nemendur verða að uppfylla forkröfur hvers tíma. Kennarar áskilja sér rétt til að meta hvort nemandi hafi þá færni sem nauðsynleg er til að taka þátt í tímum á öruggan hátt og geta mælt með öðrum, hentugri tíma.

Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu á gegnum greiðslugátt á erial.is, önnur greiðsla er strax um næstu mánaðarmót og allar aðrar framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1.dag hvers mánaðar með eindaga 5.dag hvers mánaðar. Í síðasta mánuði áskriftarinnar eru farið yfir alla reikninga og gert upp. Ef greiddir voru tveir reikningar í upphafi áskriftarinnar kemur það til lækkunar a síðasta mánuðinum.

Verði af einhverri ástæðu greiðslufall á umsömdu tímabili fær nemandi áminningu um ógreiddan reikning. Áskriftin er engu að síður virk þar til sagt er upp.

Nemendur undir 18 ára sem vilja stofna til áskriftarsamningar geta gert svo með leyfi forráðamanna. Reikningar eru sendir á forráðamenn.

Eríal Pole áskilur sér rétt til verðbreytinga. Áskriftargjald ótímabundinna samninga má hækka einu sinni á ári en aðeins í samræmi við hækkun námskeiðagjalda á því tímabili.

Einungis er hægt að frysta áskrift með framvísun læknisvottorðs eða ef Eríal Pole fellur niður námskeiðið þitt. Námskeið eru ekki endurgreidd.

Uppsögn

Það þarf alltaf að segja áskrift upp, óháð greiðslum eða mætingu. Uppsagnarfrestur áskriftar er 3 mánuðir frá dagsetningu uppsagnarbeiðni. 

Uppsögn þarf að berast á tölvupósti til erial@erial.is með fyrirsögninni “Uppsögn á áskrift”
Ekki er tekið við uppsögn með neinum öðrum hætti. 

Additional information

Veldu

Áskrift 2x í víku, Áskrift 3x í viku, Áskrift ótakmarkaðan tíma, Lyklaaðgangur, Áskrift 1x í viku

Go to Top