Ráðstafanir í Eríal Pole vegna kórónaveiru.
Vegna takmarkana sem eru nú í gildi hafa eftirfarandi ráðstafanir verið teknar til að lágmarka smithættu í stúdíóinu:
- Þjálfarar munu þrífa og sótthreinsa stúdíóið ásamt algengustu snertifleti fyrir og eftir hvern tíma.
- Það verður ýmist 10 eða 15 mín pása á milli allra tíma.
Við biðjum iðkendur um að mæta ekki fyrr en fimm mínútum fyrir tímann sinn og verji ekki meira en fimm mínútum í að fara út úr stúdíóinu eftir tíma. Þetta er gert til þess að lágmarka fjölda fólks í stúdíóinu hverju sinni og svo þjálfarar nái að spritta snertifleti á milli tíma. - Það er kominn sér inngangur að súlusalnum, svo þau sem eru að koma pole tíma eru beðnir vinsamlegast um að nota þann inngang. Iðkendur sem eru að mæta í tíma í loftfimleikasalnum skulu halda áfram að nota aðal innganginn.
- Fjöldi iðkenda í tíma er nú enn takmarkaðri til þess að halda 2 metra fjarlægð.
- Mikilvægt að vera búin að skrá sig á námskeið/í tíma áður en mætt er.
- Vera búin að ganga frá greiðslum í vefverslun/með millifærslu áður en mætt er.
Smitvarnar reglur í Eríal Pole:
- Virða tveggja metra regluna.
- Spritta hendur þegar gengið er inn í stúdíóið.
- Vera með grímu á meðan gengið er um stúdíóið. Leyfilegt að taka hana niður þegar allir eru komir að sinni súlu/lyru/silki.
- Þrífa áhöld og dýnur vel með spritti fyrir og eftir notkun.
- Koma með vatnsbrúsa sem búið er að fylla á til að lágmarka smithættu við vaska.
- Mæta tilbúin/n í viðeigandi æfingarfatnaði.
- Þjálfarar munu leiðbeina án snertinga. Við biðjum nemendur að framkvæma ekki æfingar sem þeir treysta sér ekki til þess að gera án aðstoðar. Þjálfarar munu í staðinn bjóða iðkendum upp á auðveldari útgáfur eða hvetja til þess að vinna í staðinn í undirbúnings og styrktaræfingum fyrir viðkomandi stöðu.
Eftirfarandi hefur verið tekið úr notkun tímabundið:
- Eríal gym.
- Drykkjarbrunnur inni í stóra sal.
- Búningsklefar og sturtur.
Við minnum einnig á að:
- Iðkendur með flensueinkenni og/eða í áhættuhóp skulu vinsamlegst halda sig heima og mæta ekki í tíma.
- Handþvottur er besta forvörnin.
- Sprittbrúsar verða aðgengilegir um allt stúdíó.
Iðkendur fylgist vel með tilmælum Landlæknis. Nýjustu upplýsingar má finna á https://www.landlaeknir.is/koronaveira/ og https://www.covid.is/